Skólastyrkur
Stofnaður hefur verið sjóður í nafni Fríkirkjunnar í Hafnarfirði sem ætlað er að styðja foreldra sem vantar fjárhagslega aðstoð vegna innkaupa á skólavörum fyrir börn sín.
Við hvetjum alla þá sem vilja styðja við þetta framtak, en frumkvæðið að því átti ungur maður innan safnaðarins, til þess að leggja inn á reikning sjóðsins.
Reikningsnúmer: 0140-05-010060.
Kennitala Fríkirkjunnar í Hafnarfirði: 560169-5159.
Hafið samband við prestana okkar, sr. Einar eða sr. Sigríði Kristínu, ef óskað er úthlutunar úr sjóðnum. Sími 565 3430 og netföng þeirra eru: einar@frikirkja.is og sigga@frikirkja.is.
