Skráð þann 20. september 2011 kl. 20:17
Síðastliðinn laugardag héldum við mikla tónlistarveislu undir heitinu Hausthátíð Fríkirkjunnar í Hafnarfirði. Skemmst er frá því að segja að hátíðin heppnast stórkostlega vel og mátti heyra margar ánægjuraddir og sjá brosandi andlit þegar veislugestir yfirgáfu kirkjuna og héldu niður í safnaðarheimili til þess að fá sér vöfflur.
Fjölmargir tónlistarmenn gáfu kirkjunni okkar vinnu sína þennan dag og sendum við þeim innilegar þakkir fyrir það. Framlag þeirra var ómetanlegt. Sömuleiðis færi ég þakkir öllum þeim sem lögðu hönd á plóg við annað þennan dag og gerðu daginn svo eftirminnilegan sem reyndin varð. Að öðrum ólöstuðum verður þó að lofa og þakka Erni Arnarsyni, tónlistarstjóranum okkar, sérstaklega fyrir frábært skipulag og skemmtilega tónlistarblöndu þannig að allir, jafnt ungir sem aldnir, fengu eitthvað við sitt hæfi.
Við stefnum ótrauð á að endurtaka leikinn að ári en í millitíðinni munum við eflaust taka upp á einhverju skemmtilegu á tónlistarsviðinu enda er tónlistin eitt af flaggskipum Fríkirkjunnar í Hafnarfirði og það sást síðastliðinn laugardag að Fríkirkjufólk og velunnarar þess er alls megnugt. Slík auðlind verður aldrei fullþökkuð.
Öllum gestum þakka ég sérstaklega fyrir komuna. Sjáumst að ári! Og auðvitað miklu fyrr því messurnar okkar, kvöldvökurnar og sunnudagaskólinn eru iðulega með þessum blæ tónlistar og þá ekki síður þeim léttleika sem einkennir jákvætt og gott safnaðarstarf.
Með góðri kveðju,
Jóhann Guðni Reynisson
form. safnaðarstj.
Skráð þann 12. september 2011 kl. 20:19
Vetrarstarf Fríkirkjunnar í Hafnarfirði er nú
hafið af fullum krafti. Af því tilefni og til þess að kynna söfnuðinn og
starfsemi hans hefur verið ákveðið að blása til Hausthátíðar með
tónlistarveislu í kirkjunni og safnaðarheimilinu að Linnetsstíg 6 næstkomandi
laugardag, 17. september, milli kl. 15 og 17. Þar munu koma fram fjölmargir
tónlistarmenn sem nær allir eru í söfnuðinum og gefa vinnu sína þennan dag í
þágu kirkjunnar. Þetta eru Kór Fríkirkjunnar í Hafnarfirði, Erna
Blöndal, Guðmundur Pálsson, Fríkirkjubandið,
Bjargræðistríóið, Hildigunnur Einarsóttir, Sönghópur Fríkirkjunnar í Hafnarfirði, Esther Jökulsdóttir og Tómas Axel Ragnarsson og
smiðshöggið í lokin reka bræðurnir Jón Jónsson
og Friðrik Dór. Það er ekki tilviljun að tónlistin
verður fyrir valinu sem sérstakur erindreki fríkirkjusafnaðarins þennan dag þar
sem hún er ávallt í öndvegi í öllu okkar starfi og margir hrífast með í messum,
kvöldvökum, fermingum og öðrum samkomum þar sem léttleiki í tónlistarvali og
flutningi ræður ríkjum.
Auk tónlistarveislunnar verður vetrarstarfið kynnt og
starfsemi safnaðarins almennt auk þess sem skráningareyðublöð liggja frammi
fyrir þá sem vilja ganga í fríkirkjusöfnuðinn í Hafnarfirði. Hefur undirritaður
oft verið spurður um hvort hann viti hvort fyrirspyrjendur séu skráðir í
söfnuðinn en yfirleitt verður fátt um svör. En nú er lag því við verðum með
tölvuna opna á Hausthátíðinni og getum flett upp á slíku á staðnum. Margir hafa
jafnframt reifað það að þeir hafi oft og tíðum hugleitt og jafnvel ætlað að
ganga í söfnuðinn þar sem þeir njóti og nýti iðulega þjónustu prestanna okkar,
t.d. við skírnir, fermingar, brúðkaup og/eða jarðarfarir. Það skiptir okkur fjárhagslega
gríðarlegu máli að sem flestir sem njóta þjónustu okkar séu skráðir í söfnuðinn
þar sem við höfum nær eingöngu tekjur okkar af sóknargjöldum sem ríkissjóður
skilar til safnaðarins fyrir hvern þann safnaðarmeðlim sem orðinn er 16 ára og
býr hér á landi. Af þeim tekjum greiðum við t.d. laun prestanna og annarra
starfsmanna. Hausthátíðin er einmitt góður vettvangur til þess að hitta okkur í
stjórn og starfsliði og ræða þessi mál.
Þess skal að lokum getið að sr. Sigríður Kristín
Helgadóttir, annar prestanna okkar, er nú í ársleyfi að hluta en hún sinnir
engu að síður fermingarfræðslu og fermir ásamt sr. Einari í vor. Í hennar stað
höfum við fengið sr. Bryndísi Valbjarnardóttur, prest hjá Fríkirkjunni í
Reykjavík, til starfa. Sr. Bryndís mun m.a. sjá um æðruleysismessurnar. Á myndinni hér að ofan má sjá prestana okkar þrjá, sr. Einar, sr. Sigríði og sr. Bryndísi ásamt Erni tónlistarstjóra l.th.
Látið sjá ykkur sem flest á laugardaginn, njótið
tónlistarveislunnar og þiggið vöfflukaffi.
Skráð þann 30. júní 2011 kl. 00:00

Á fundi sem haldinn var í safnaðarheimilinu í kvöld var samhljóða samþykkt að endurvekja starfsemi Bræðrafélags Fríkirkjunnar í Hafnarfirði, BFH. Um 20 karlar mættu á fundinn og ríkti mikil eining og framtaksvilji meðal fundarmanna. Auk þeirra sem mættu á fundinn í kvöld er vitað um áhuga fjölmargra fleiri sem ekki höfðu tök á að mæta en vilja vera félagar í BFH.
Farið var yfir helstu viðfangsefni BFH og jafnframt rætt um félagslega þætti og augljóst var að mönnum mun ekki leiðast í þessum félagsskap.
Ráðgert er að í haust verði formlegur endurstofnfundur haldinn og þá í Góðtemplarahúsinu sem segja má að sé vagga safnaðarstarfs Fríkirkjunnar en þar voru fyrstu messur hans haldnar auk þess sem þar hafa verið hýstir ýmsir fundir safnaðarins og samsæti. Þó var ákveðið að ráðast þegar í sumar í ákveðnar endurbætur í nafni BFH, m.a. á kirkjuhúsinu sem augljósar eru og þola ekki bið.
Engar kvaðir eða kröfur aðrar en hugsanlegt félagsgjald fylgja aðild að BFH og skrá félagar sig til margvíslegra verkefna eða til aðildarinnar einnar, allt eins og hugur hvers og eins stendur til. Áhugasamir um félagsskapinn og/eða inngöngu í hann eru hvattir til að senda línu til formanns safnaðarstjórnar, Jóhanns Guðna Reynissonar, á netfangið johanngr1@simnet.is eða hafa samband í síma 665 8928.
Skráð þann 20. júní 2011 kl. 22:34
Trúðu
á sjálfs þín hönd en undur eigi.
Upp með plóginn, hér er þúfa í vegi.
Þessi orð Einars Benediktssonar eiga
ávallt vel við þar sem menn vilja láta verk sín tala. Og það á við um
Bræðrafélag Fríkirkjunnar í Hafnarfirði sem var stofnað árið 1930 og verður nú
endurvakið en um er að ræða félagsskap karla í söfnuðinum sem vilja láta gott
af sér leiða í starfi kirkjunnar eins og hverjum og einum hentar best.
Bræðrafélagið starfaði lengi ásamt
kvenfélagi kirkjunnar, sem enn starfar af fullum krafti, að margvíslegum
verkefnum til að styðja og efla undirstöður og starfsemi safnaðarins. Stærsta
einstaka verkefni félagsins var þó bygging prestseturs að Tjarnarbraut 7 sem
telst með fallegri húsum Hafnarfjarðar.
Starfsemin nú mun taka mið af þeim
mannauði sem finna má í félaginu. Á engan verður meira eða fleira lagt en hann
sjálfur kýs og geta menn skráð sig til þátttöku í mismunandi verkefnaflokkum
eða til félagsaðildarinnar einnar. Má þar nefna viðhald og endurbætur á kirkjunni,
safnaðarheimilinu og innanstokksmunum, umhirðu lóðar, félagsstarf, fjáröflun,
tölvuvinnu eða í vefheimum og svo mætti áfram telja. Framlag hvers og eins
getur verið vinna – hvort sem það er í kirkjunni, safnaðarheimilinu, í tölvunni
heima eða annars staðar, efni, lán á búnaði, fjársöfnun eða fjárhagslegur
stuðningur o.s.frv.
Ráðgert er að félagsstarfið verði ekki
einungis gefandi og afköstin umtalsverð heldur er jafnframt gert ráð fyrir að
það verði skemmtilegt og álag hóflegt. Því eru allir þeir, sem vilja gera
Fríkirkjunni í Hafnarfirði gagn, hvattir til að koma á endurvakningarfund
Bræðrafélags hennar miðvikudaginn 29. júní kl. 20:00 í safnaðarheimilinu að
Linnetsstíg 6, fá sér kaffisopa og ræða málin. Í því felst engin skuldbinding.
Verið velkomnir, bræður!
Skráð þann 1. júní 2011 kl. 09:11
Eins og stundum áður sendum við um þessi mánaðamót söfnuðinum ósk um svolítið fjárframlag með gíróseðli að fjárhæð 1.575. Að sjálfsögðu er um valgreiðslu að ræða sem ber enga vexti og hverfur að ákveðnum tíma liðnum hafi hún ekki verið greidd.
Ástæðan er einkum sú að tekjur af sóknargjöldum hafa dregist verulega saman (um 5 milljónir króna á síðasta ári skv. ársreikningi okkar - þetta er einhliða ákvörðun ríkisvaldsins - og Hafnarfjarðarbær hefur ekki séð sér fært að styðja við starf okkar með fjárframlagi undanfarin tvö ár sem þar áður nam 2 m.kr. árlega í nokkur ár. Samtals hefur því orðið tekjusamdráttur um 7 m.kr. sem munar verulega um). Þessi þróun hefur orðið þrátt fyrir að umtalsvert fjölgi í söfnuðinum. Af framkvæmdum má nefna að fyrir dyrum endurnýjun á þakrennum kirkjunnar, handriði á svölum safnaðarheimilis og fleira. Einnig hefur þurft að gera við kirkjuorgelið fyrir umtalsverða fjárhæð.
Nánar verður fjallað um verkefni okkar og stöðu mála í grein hér á vefnum á næstunni en þar sem kröfur hafa þegar verið stofnaðar í heimabanka þrátt fyrir að gíróseðlar hafi ekki enn verið sendir út þótti mér ástæða til að gera hér viðvart um þetta.
Með kveðju, einlægri ósk um jákvæðar undirtektir og innilegum þökkum,
Jóhann Guðni Reynisson,
form. safnaðarstj.