Fréttir

Fjölskylduhátíðin í Kaldárseli 8. maí

Skráð þann 3. maí 2011 kl. 09:50

Næsta sunnudag, 8. maí kl. 11, er fölskylduhátíð Fríkirkjunnar í Hafnarfirði í Kaldárseli. Hátíðin hefur öðlast fastan sess í starfi safnaðarins enda stórskemmtileg samkoma í fallegu og merkilegu umhverfi. Þess má geta að hljómsveitin og kórinn verða að sjálfsögðu í Kaldárseli og þar verður að venju fjölbreytt dagskrá með skemmtun fyrir börnin auk þess sem grillað verður fyrir þau og boðið upp á kaffiveitingar fyrir hina eldri. Dagskráin hefst kl. 11 eins og áður segir og þeim sem ekki koma á eigin bílum er bent á rútuferð frá kirkjunni kl.10:30. Verið velkomin í Kaldársel!