Fréttir
Frábær vorhátíð
Skráð þann 8. maí 2011 kl. 21:09
Vorhátíðin okkar var haldin í Kaldárseli í dag í einmunablíðu, sólskini og 18 stiga hita. Enda var fjölmennt en talið er að hátt í 400 manns hafi mætt á svæðið og dagskráin frábær. Myndirnar hér að neðan tala sínu máli:

Ó, hókíhókípókí!

Hljómsveitin okkar er snilldin ein, hvort sem hún spilar í Kaldárseli eða kirkjunni - alltaf flottir.

Allir með! Ungir jafnt sem hinir eldri tóku virkan þátt í dagskránni.

Friðbjörg stjórnaði kórnum glæsilega í einu laganna meðan kórstjórinn hvíldi lúnar hendur.

Já, þeim leiddist ekki, þessum.

...og þeim ekki heldur :0)

Í sól og sumaryl...

Vísifingur, vísifingur, hvar ert þú?

Frú Edda Möller tekur til máls.

Pylsurnar eru gríðarlega vinsælar.

Gleðigjafinn Guðmundur Pálsson!
