Fréttir
Fermingarstarfið næsta vetur
Skráð þann 16. maí 2011 kl. 12:14
Fermingarstarf næsta vetrar hefst í lok ágúst og verður bréf sent til þeirra fermingarbarna sem skráð eru í söfnuðinn þegar nær dregur. Þau ungmenni sem ætla sér að taka þátt í starfinu en eru ekki skráð í söfnuðinn eru beðin að senda póst á einar@frikirkja.is og skrá sig til þátttöku. Fermingardagana má sjá hér að neðan og má senda inn beiðnir um skráningu á fermingardag á sama netfang.Fermingardagar 2012.
Margir eru farnir að spyrja um fermingardaga að ári, 2012.
Þessir daga hafa verið ákveðnir:
Laugardagur 31. mars.
Pálmasunnudagur 1. apríl.
Sumardagurinn fyrsti 19. apríl.
Sunnudagur 13. maí.
