Fréttir

Fjáröflun - valgreiðsla í heimabanka

Skráð þann 1. júní 2011 kl. 09:11
Eins og stundum áður sendum við um þessi mánaðamót söfnuðinum ósk um svolítið fjárframlag með gíróseðli að fjárhæð 1.575. Að sjálfsögðu er um valgreiðslu að ræða sem ber enga vexti og hverfur að ákveðnum tíma liðnum hafi hún ekki verið greidd. 
 
Ástæðan er einkum sú að tekjur af sóknargjöldum hafa dregist verulega saman (um 5 milljónir króna á síðasta ári skv. ársreikningi okkar - þetta er einhliða ákvörðun ríkisvaldsins - og Hafnarfjarðarbær hefur ekki séð sér fært að styðja við starf okkar með fjárframlagi undanfarin tvö ár sem þar áður nam 2 m.kr. árlega í nokkur ár. Samtals hefur því orðið tekjusamdráttur um 7 m.kr. sem munar verulega um). Þessi þróun hefur orðið þrátt fyrir að umtalsvert fjölgi í söfnuðinum. Af framkvæmdum má nefna að fyrir dyrum endurnýjun á þakrennum kirkjunnar, handriði á svölum safnaðarheimilis og fleira. Einnig hefur þurft að gera við kirkjuorgelið fyrir umtalsverða fjárhæð.
 
Nánar verður fjallað um verkefni okkar og stöðu mála í grein hér á vefnum á næstunni en þar sem kröfur hafa þegar verið stofnaðar í heimabanka þrátt fyrir að gíróseðlar hafi ekki enn verið sendir út þótti mér ástæða til að gera hér viðvart um þetta.  
  
Með kveðju, einlægri ósk um jákvæðar undirtektir og innilegum þökkum,
Jóhann Guðni Reynisson,
form. safnaðarstj.