Trúin og lífið

Jesús sagði að af ávöxtunum mætti þekkja tréið.  

Í fallegu ljóði tjáir Árni Grétar Finnsson hversu mikilvægt er að sýna öðrum hlýtt og gott viðmót.  

Þú ert það, sem þú öðrum miðlað getur
og allar þínar gjafir lýsa þér
og ekkert sýnir innri mann þinn betur, 
en andblær hugans, sem þitt viðmót ber. 

Því líkt og sólin ljós og yl þér gefur
og lífið daprast, ef hún ekki skín,
svo viðmót þitt á aðra áhrif hefur
og undir því er komin gæfa þín.