Kvenfélagið

 
 
Fríða Sæmundsdóttir formaður

Fríða Sæmundsdóttir, formaður.

Kvenfélagið styrkir  m.a. kirkjuna
og starfsemi hennar.  

 

Saga

 
Kvenfélag Fríkirkjunnar var stofnað 16. apríl 1923.  Markmið þess var og er að efla starf kirkjunnar með því að afla fjár.  Kvenfélagið hefur m.a. stutt barna- og æskulýðsstarfið frá upphafi sem og keypt ýmislegt sem söfnuðinn vantar, t.d. nýverið glæsilegan flygil sem hefur komið sér vel við athafnir í kirkjunni.

Fjáröflunin fer fram á Kaffidaginn, á jólafundi og með basar á vorin.  
Á aðalfundi Kvenfélags Fríkirkjunnar í febrúar 2009 tók Fríða Sæmundsdóttir við sem formaður félagsins.  Þakkar safnaðarstjórn fráfarandi formanni, Ingibjörgu Þorgeirsdóttur, kærlega fyrir hennar störf í þágu félagsins.    

Allar fríkirkjukonur hvattar til þess að skrá sig í félagið.  

Árgjaldið er 1.500. kr.   
 
Nánari upplýsingar veitir Fríða Sæmundsdóttir í síma: 8206563 eða í tölvupósti: fridas@landsbankinn.is

ATHUGIÐ, fundirnir verða framvegis á MIÐVIKUDÖGUM í stað þriðjudaga.

 

MIÐVIKUDAGINN 5. OKTÓBER verður fyrsti fundur vetrarins, í safnaðarheimilinu við Linnetstíg 6, kl. 20.00.  Fyrsti fundur vetrarins verður helgaður starfi kvenfélagsins fyrr á tímum og lesið úr gömlum fundargerðabókum.

 

SUNNUDAGINN 9. OKTÓBER verður  kaffisala að lokinni messu í kirkjunni og  hefst kaffisalan kl. 14.00.

Við treystum á þig eins og áður að senda okkur köku eða eitthvað annað.  Allt er þegið með þökkum.   Tekið á móti kökum frá kl. 11.00 f.h., í safnaðarheimilinu.

 

MIÐVIKUDAGINN 2. NÓVEMBER.  Fundur í safnaðarheimilinu kl. 20.00.  Gestur fundarins verður Bergþór Pálsson, sem fræðir okkur um ýmislegt.

 

SUNNUDAGINN 27. NÓVEMBER  kl. 20.00 verður jólafundurinn í Skútunni.  Að venju verður fjölbreytt dagskrá og happdrætti.  Allir velkomnir.

 

MIÐVIKUDAGINN 1. FEBRÚAR 2012, verður aðalfundur í safnaðarheimilinu kl.20.00.

Venjuleg aðalfundarstörf

 

SUNNUDAGINN 11. MARS 2012 verður okkar árlegi basar í safnaðarheimilinu, að messu lokinni. Messan hefst k. 13.00.  Nánar auglýst síðar.

 

Barnastarfið er hvern sunnudag kl. 11.00 í kirkjunnni.  Kvenfélagið styrkir  m.a. kirkjuna

og starfsemi hennar.

 

Síðast liðið vor voru vígðir nýir fermingarkirtlar, sem kvenfélagið gaf kirkjunni.  Einnig gaf félagið ísskáp og kaffikönnur í safnaðarheimilið.


SAGA KVENFÉLAGSINS
 
Kvenfélagið (úr Sögu Hafnarfjarðar, 2. bindi, bls. 408-409):

,,Fyrsta verkefni Kvenfélags Fríkirkjusafnaðarins var að greiða kostnað við að setja upp ljós í kirkjunni og sjá um hreinsun hennar. Síðan hafa konurnar annazt um að prýða kirkjuna og lagt til búnað hennar og skrúða prestsins. Auk þess hefur kvenfélagið styrkt kirkjustarfið á ýmsan annan hátt, t.d. tekið þátt í orgelkaupum, greiðslu til organinstans, viðhaldi kirkjunnar o.fl. Fjár til starseminnar hefur félagið aflað með bösurum, hlutaveltum, happdrætti, úti- og inniskemmtunum og stundum með merkjasölu. Við Fríkirkjuna var stofnaður minningarsjóður um frú Guðrúnu Einarsdóttur, fyrsta formann kvenfélagsins, og hefur þessi sjóður oft hlaupið undir bagga, þegar fjárfrekar framkvæmdir við kirkjuna hafa verið á döfinni. Á síðari árum hefur Kvenfélag Fríkirkjusafnaðrins ásamt safnaðarstjórn og safnaðarprestum unnið að því að koma á fót barnasamkomum í kirkjunni til að laða börnin að kirkjulegu starfi. Kvenfélagið kostar þetta starf að öllu leyti, og hafa barnasamkomurnar verið vel sóttar. Þá hafa félagskonur gert sér glaðar stundir, er þær hafa komið saman til að vinna að ymsum menningarmálum.”

Framangreint er úr Sögu Hafnarfjarðar 1908-1983. Starfinu eins og það hefur þróast síðan þá gerum við skil við fyrsta hentgleika. (jgr / 2. maí, 2009)