Sporin 12 andlegt ferðalag
Á hverju hausti er lagt af stað í andlegt ferðalag og hefur verið boðið upp á þetta góða starf árum saman og vakið mikla athygli en þátttaka hefur verið mun meiri en búist var við. Sporin 12, andlegt ferðalag er leiðsögn fyrir fólk sem mætt hefur misjöfnu á lífsleiðinni og vill bæta líðan sína eða sættast við fortíðina. Þótt í þessu starfi sé byggt á reynslusporum AA samtakanna er ekki verið að glíma hér við alkóhólisma heldur hvers kyns annað mótlæti sem fólk kann að hafa orðið fyrir. Reynslusporin 12 og boðskapur trúarinnar hafa reynst fólki vel í slíku uppbyggingarstarfi. Starfið fer fram á fimmtudagskvöldum yfir vetrartíman.
Opnir 11. spors fundir í sumar.
Vinir í bata bjóða upp á opna 11. spors fundi hálfsmánaðarlega í sumar. Fundirnir verða annan hvern fimmtudag í Fríkirkjunni kl.20-21 ( gengið inn um hliðardyr )
Fyrsti fundur er fimmtudagskvöldið 17. maí og hálfsmánaðarlega eftir það.
Fundirnir eru opnir öllum sem hafa farið i gegnum sporin 12 Andlegt ferðalag og vilja viðhalda þeim bata sem þeir hafa öðlast með því að hitta aðra sporfara og deila reynslu sinni, styrk og von, ásamt bæn og hugleiðslu.
Æðruleysismessur
Æðruleysismessur eru haldnar mánaðarlega í vetur en þær hafa jafnan verið vel sóttar. Í æðruleysismessum eru sporin 12 lesin og flutt persónuleg hugleiðing frá einstaklingi sem unnið hefur með sporin 12. Prestar Fríkirkjunnar hafa leitt helgihaldið og hljómsveit kirkjunnar séð um hressilega tónlist.
