AA - fundir

Reynslusporin 12 liggja til grundvallar í öllu starfi AA samtakanna. AA fundir eru í safnaðarheimilinu á mánudagskvöldum kl. 20 og föstudagskvöldum kl.18. Sjá yfirlit um fundi samtakanna hér á heimasíðu þeirra.

Æðruleysismessur
Æðruleysismessur eru haldnar mánaðarlega yfir vetrartímann en þær hafa jafnan verið vel sóttar. Í æðruleysismessum eru sporin 12 lesin og flutt persónuleg hugleiðing frá einstaklingi sem unnið hefur með sporin 12. Prestar Fríkirkjunnar hafa leitt helgihaldið og hljómsveit kirkjunnar séð um hressilega tónlist.