Hvers vegna að skrá sig?

Það er talsvert hagsmunaatriði fyrir Fríkirkjuna að þeir sem njóta þjónustu presta hennar eða njóta safnaðarstarfsins á annan hátt séu skráðir í söfnuðinn sem fær þá sóknargjöldin til sín. Rétt er að taka skýrt fram að Fríkirkjan starfar á nákvæmlega sama kenningargrundvelli og með sambærilegum aðferðum og þjóðkirkjan hér á landi. 

Í tölum frá Hagstofunni sem birtar voru í ársbyrjun 2011 eru yfir 6.000 manns í Fríkirkjusöfnuðinum í Hafnarfirði, þar af eru um 5.600 búsettir hér á landi. Árið 2006 voru 4.757 manns skráðir í Fríkirkjusöfnuðinn í Hafnarfirði.  Af því má sjá að veruleg fjölgun hefur orðið hjá Fríkirkjunni í Hafnarfirði en 1. desember 2005 voru 4.566 manns í söfnuðinum, 1.desember 2004 voru 4.365 manns í söfnuðinum, 1.des. 2003 4.127 manns og 1. des. 2002 3.922 manns í söfnuðinum.   

Þess skal einnig getið sbr. fréttatilkynningu Hagstofunnar  að "samkvæmt lögum um sóknargjöld o.fl. nr. 91/1987 skilar ríkissjóður ákveðnum hluta tekjuskatts til þjóðkirkjusafnaða, skráðra trúfélaga og Háskólasjóðs. Þessi fjárhæð nefnist sóknargjald og er það ákvarðað sem tiltekin upphæð ár hvert fyrir hvern mann, sem er orðinn 16 ára 31. desember árið áður en gjaldár hefst. Þegar gjaldinu er ráðstafað til þjóðkirkjusafnaða og skráðra trúfélaga er miðað við lögheimili og skráningu fólks í trúfélög 1. desember árið áður en gjaldár hefst. Gjaldið er greitt til safnaðar þeirra sem eru skráðir í þjóðkirkjuna, til skráðs trúfélags einstaklinga sem eru ekki í þjóðkirkjunni og til Háskóla Íslands vegna einstaklinga sem standa utan trúfélaga eða eru í trúfélagi sem ekki hefur hlotið skráningu."

Af þessari ástæðu er rétt að benda á að fjölmargir nýta sér þjónustu presta Fríkirkjunnar í Hafnarfirði en eru þó ekki skráðir í söfnuðinn. Sérstök ástæða er því til að vekja athygli þeirra sem áhuga hafa á að ganga til liðs við Fríkirkjuna í Hafnarfirði að hafa samband við sr. Einar Eyjólfsson eða sr. Sigríði Kristínu Helgadóttur í safnaðarheimili Fríkirkjunnar að Linnetsstíg 6 í síma 565 3430. Þau veita fúslega alla nauðsynlega þjónustu og upplýsingar vegna skráningarinnar.

Skráning í söfnuðinn fer þannig fram að innganga í Fríkirkjusöfnuðinn í Hafnarfirði er skráð á tiltekin eyðublöð og skilað inn á Þjóðskrá. Eyðublöð má nálgast á skrifstofu safnaðarins að Linnetsstíg 6 en einnig er hægt að nálgast þau með því að velja "Skráningareyðublöð" hér neðst á síðunni.  Þeim má skila inn á þjóðskrá eða á skrifstofu safnaðarins í umslagi merktu "Til presta".
Einfalt er að ganga í Fríkirkjusöfnuðinn í Hafnarfirði. 

Eyðublöð til útprentunar má nálgast á heimasíðu Þjóðskrár (sjá hér að neðan) og þau má einnig fá á skrifstofu safnaðarins Linnetsstíg 6. 

Athugið að hægt er að fylla eyðublöðin út á vef Þjóðskrár en eftir það þarf að prenta þau út til undirritunar.

Smelltu á eftirfarandi tengla til að nálgast blöðin og fylla þau út:
 
 

Báðir foreldrar/forsjármenn þurfa að skrifa undir tilkynningar barna sinna yngri en 16 ára og börn sem eru orðin 12 ára þurfa einnig að skrifa undir sína umsókn með forsjármönnum.
 
Tilkynningum má skila á skrifstofur safnaðarins að Linnetsstíg 6 í Hafnarfirði. 

Eyðublöðin má einnig senda útfyllt sem símbréf (515 5310) til Þjóðskrár eða í pósti,merkt: Þjóðskrá, Borgartúni 21, 105 Reykjavík.