Viltu skrá þig í söfnuðinn?
Einfalt er að ganga í Fríkirkjusöfnuðinn í Hafnarfirði.
Eyðublöð til útprentunar má nálgast á heimasíðu Þjóðskrár (sjá hér að neðan) og þau má einnig fá á skrifstofu safnaðarins Linnetsstíg 6.
Athugið að hægt er að fylla eyðublöðin út á vef Þjóðskrár en eftir það þarf að prenta þau út til undirritunar.
Smelltu á eftirfarandi tengla til að nálgast blöðin og fylla þau út:
Fyrir 16 ára og eldri: http://www.skra.is/lisalib/getfile.aspx?itemid=6687
Fyrir börn yngri en 16 ára: http://www.skra.is/lisalib/getfile.aspx?itemid=6964
Báðir foreldrar/forsjármenn þurfa að skrifa undir tilkynningar barna sinna yngri en 16 ára og börn sem eru orðin 12 ára þurfa einnig að skrifa undir sína umsókn með forsjármönnum.
Tilkynningum má skila á skrifstofur safnaðarins að Linnetsstíg 6 í Hafnarfirði.
Eyðublöðin má einnig senda útfyllt sem símbréf (515 5310) til Þjóðskrár eða í pósti,merkt: Þjóðskrá, Borgartúni 21, 105 Reykjavík.
