Bræðrafélagið
Hlutverk Bræðrafélagsins miðast við að efla félagstarfið og vera stuðningur við kirkjuna og Fríkirkjusöfnuðinn. Meðal verkefna er sjá um að halda umhverfi kirkjunnar og safnaðarheimilis snyrtilegu, vera ráðgefandi um stærri viðhaldsverkefni og taka saman til hendinni við smærri lagfæringar og betrumbætur. En Bræðrafélagið er líka jákvæður og opinn félagsskapur allra manna sem vilja láta gott af sér leiða fyrir kirkjuna og safnaðarstarfið.
Bræðrafélagið er ekki með fasta
dagskrá, en við hittumst oftast á
laugardagsmorgnum eftir efnum og aðstæðum hverju sinni.
Stjórn skipa:
Einar Sveinbjörnsson form.
Matti Ósvalds Stefánsson, ritari
Helgi Freyr Kristinsson,
gjaldk.
Allir fríkirkjumenn eru hvattir til þess að skrá sig í Bræðrafélagið.
Nánari upplýsingar veitir Einar Sveinbjörnsson í síma: 857-1799 og í tölvupósti, vedurvitinn@gmail.com.
SAGAN
Hinn 27. september 1930 stofnuðu nokkrir karlmenn í Fríkirkjusöfnuðinum Bræðrafélag Fríkirkjusafnaðarins í því skyni að styðja og styrkja safnaðarlífið, bæði í andlegu og efnalegu tilliti, en meginmarkmið félagsins var að koma upp íbúðarhúsi handa presti safnaðarins. Hafinn var undirbúningur að smíði prestssetursins þegar eftir stofnun félagsins. Húsið var steinsteypt, byggt að Tjarnarbraut 7 og það var afhent safnaðarstjórninni ári síðar. Í húsinu mátti presturinn búa án þess að greiða leigu en hann átti þó að borga vatnsskatt, holræsagjald og rafmagn.
(jgr / Heimildir: Lesbók Morgunblaðsins, 18. apríl, 1943 og Saga Hafnarfjarðar, 2. bindi, bls. 409-411.)
