Um 250 – 300 manns mættu í Hellisgerði á Vorhátíð Fríkirkjunnar í dag, þrátt fyrir kalsaveður.
Lúðrasveit Hafnarfjarðar leiddi skrúðgöngu frá safnaðarheimilinu niður Strandgötu og þaðan í Hellisgerði.
Tónlist, skemmtun og gleði. Heitar pylsur runnu vel af grillinu í gesti. Fáum var kalt og engum meint af, enda fólkið sjálft í Fríkirkjunni á öllum aldri sem kanna að njóta sutndarinnar og gefa af sér.
Öllum þeim sem komu að undirbúningi og framkvæmd eru færðar góðar þakkir.
Slóð á Feisbók Fríkirkjunnar með myndum og myndböndum.