Skráning í fermingu í Fríkirkjunni í Hafnarfirði vorið 2026!

14. febrúar 2025

Höfundur: Erna Blöndal

Hér geta foreldrar og forráðamenn skráð fermingarbörn vorið 2026.

https://frikirkja.skramur.is/input.php?id=7

Vinsamlega biðjið um aðgang að Facebooksíðunni Fermingarhópur 2026.

Ferming er merkileg stund í lífi fermingarungmenna og fjölskyldna þeirra. Stór tímamót þar sem fermingarungmenni þiggur blessun og kærleiksrík orð sem veganesti í ferðalagið til fullorðinsára. Fermingin snýst fyrst og fremst um það að gleðjast með fermingarungmenninu fyrir það eitt að vera það sjálft og sýna því að maður stendur aldrei einn í lífinu. Við erum elskuð af Guði og elskuð af fólkinu okkar, sem stendur okkur nærri.

Í fermingarfræðslunni förum við yfir margt gagnlegt og skemmtilegt og veltum fyrir okkur mörgum stærstu spurningum samtímans. Ekkert er okkur óviðkomandi, hvort sem það er trú og efi, gleði og sorg, umhverfismál, samskipti kynjanna, mannréttindi, #metoo, kynverund, virðing eða jafnrétti. Leiðbeinendur fermingarfræðslunnar eru prestar Fríkirkjunnar í Hafnarfirði, Einar Eyjólfsson, Inga Harðardóttir, Margrét Lilja Vilmundardóttir og söngkonan K. Erna Blöndal. Einnig fáum við góða gesti í heimsókn yfir veturinn.

Fríkirkjan leggur mikið upp úr góðu samstarfi við foreldra í gegnum fræðslu vetrarins og óskar eftir góðri þátttöku foreldra og fermingarungmenna í helgihaldi og einstaka fyrirlestrum yfir veturinn. Enda gott tækifæri á góðum gæðastundum.

Mikilvægt er að biðja um aðgang að facebook-síðu kirkjunnar Fermingarhópur 2026

Hægt er að senda fyrirspurnir á netfangið ferming@frikirkja.is eða með því að hringja í kirkjuna í síma: 565-3430. Einnig er hægt að senda tölvupóst á einar@frikirkja.is eða milla@frikirkja.is. Við minnum ykkur svo á að skrá barnið í kirkjuna á skra.is

Verið hjartanlega velkomin í Fríkirkjuna í Hafnarfirði.

Go to Top